Prófaðu nýja leið. Fáðu bílinn þrifinn heima í innkeyrslunni eða á meðan þú ert í vinnunni. Skráðu þig í mánaðarlega áskrift á bílaþrif hjá okkur.
Veturinn á Íslandi getur verið erfiður fyrir bílana okkar. Það er því grundvallar atriði að þjónusta bílinn sinn vel. Nú bjóðum við uppá nýja leið í þjónustu þar sem við komum heim og þrífum á staðnum. Eða sækjum og skilum - allt af þínum óskum.
Martynas Slanina
Gufuþvottur á bílum og yfirborði ökutækja veldur engum skemmdum.
Hann virkar þvert á móti þannig að hátt hitastigið hreinsar fullkomlega burt fitu, dísilolíu, tjörubletti og salt á veturna.
Eftir gufuþvott endurheimtir yfirborðið fyrri áferð og gljáa án þess að málningin dofni.
Með gufuhreinsun við háan hita er eins og málaða yfirborðslakklagið endurheimti fyrri áferð með því að fínslétta örformað og einsleitt yfirborð lakksins.
Tæknin við gufuhreinsun er árangursrík, umhverfisvæn og einföld lausn við hreinsun á bílum og bílvélum.
Við bjóðum upp á frábæra leið í staðinn fyrir venjulegan bílaþvott og sjáum um að allt sé sem þægilegast fyrir alla.
Bílaþvotturinn sem við bjóðum uppfyllir væntingar kröfuhörðustu viðskiptavina.
Við erum staðsett í bílahúsinu á Höfðatorgi. Það er einfalt að panta tíma og koma á staðinn, eða við sækjum bílinn og skilum að hreinsun lokinni.
Við getum líka komið til þín. Ef vel viðrar getum við komið til þín á vinnustaðinn eða heim og hreinsað bílinn á staðnum. Þitt er valið.
Okkar aðalmarkmið er að þú fáir toppþjónustu og vinnan okkar skili sér í verndun bílsins þíns.
Við erum stolt af því að nota kemísk efni í algjöru lágmarki. Aðeins á felgur.
Við bjóðum fyllilega samkeppnishæft verð og vel það. Bókaðu tíma og við hreinsum bílinn.
Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing. Þeir bóka hjá okkur aftur og aftur. Svo er hægt að vera í áskrift á þrifum.
Einungis þarf tæpa 4 lítra af vatni fyrir hvern þvott með þeirri tækni sem við notum við gufuþvottinn en við hefðbundinn bílaþvott á þvottastöð þarf yfir 130 lítra!
Með því að nota gufu er mögulegt að hreinsa yfirborð bílsins vandlega með alúð. Gufan kemst líka að öllum krókum og kimum í bílnum.
Nú er hægt að fá bílinn þveginn heima við, á vinnustaðnum eða þegar þú ert í daglegum snúningum.
Eco gufubílaþvottur er umvherfisvæn leið í að halda bílnum tandurhreinum. Skráðu þig á póstlistann okkar og fylgstu með því nýjasta í gufuhreinsun.